top of page
IMG_1704.jpg

Reykjavík Cocktails var stofnað árið 2018 og hefur síðan þá fest sig í sessi sem leiðandi þjónusta á sviði kokteila og barþjónustu.

Hjá okkur starfar hópur reynslumikilla og margverðlaunaðra barþjóna sem deila ástríðu fyrir hágæða drykkjasköpun og eftirminnilegri upplifun.

 

Við lítum á hvern viðburð sem einstakt tækifæri til að skapa sérsniðna stemningu með fallegum drykkjum og framúrskarandi þjónustu.
 

Hvort sem um ræðir veislu í heimahúsi, brúðkaup, árshátíð eða stóran fyrirtækjaviðburð, sjáum við til þess að þín veisla verði ógleymanleg.

​SÉRSTAÐA OKKAR

Við bjóðum upp á háklassa kokteila, bjór, vín og óáfenga drykki sem henta við öll tilefni.
 

Hjá okkur starfa reynslumiklir og hressir barþjónar sem hafa gert það að sínu markmiði að skapa einstaka stemningu og eftirminnilega upplifun – sama hvort um ræðir litla veislu í heimahúsi eða stóran viðburð.
 

Til að fá verðhugmyndir og sniðna lausn fyrir þína veislu er einfaldlega best að hafa samband – við sjáum um restina.

IMG_2045.jpg
HVAÐA PAKKI HENTAR FYRIR MINN VIÐBURÐ?

Við bjóðum upp á nokkra mismunandi pakka fyrir mismunandi tilefni og stærðir á hópum.

IMG_2484.jpg

KOKTEILAR

Á kokteilaseðlinum er að finna bæði klassíska kokteila og okkar eigin drykki sem við höfum þróað í gegnum árin.

 

Við getum þróað sérstakan kokteil fyrir þína veislu, að þínum óskum. 

Við bjóðum einnig upp á kaldan bjór, vín og óáfenga drykki.

IMG_2286.jpg
bottom of page